Galaxy S IV 14.mars
Samsung mun núna 14.mars tilkynna nýjar vörur á sérstökum atburði. Við getum öll verið viss um að þeir muni uppfæra flaggskipið sitt og gefa út Galaxy S IV. Sagt hefur verið að Samsung muni með Galaxy S IV halda áfram að leggja áherslu á eiginleika framyfir öflugt innvols.
Samsung hefur staðið sig vel í að halda öllum upplýsingum um nýja Galaxy símann þétt að sér. Heimildir segja að stökkið milli SIII og S IV muni verða talsvert stærra en stökkið milli SII og SIII var.
Þær upplýsingar sem spámenn hafa þó reynt að setja saman um símann eru:
- Nýr 1,8 GHz átta kjarna örgjörvi (Exynos) frá Samsung
- Skjárinn verður aðeins stærri, eða fimm tommur
- Myndavélin verður 13 megapixla
- Stýrikerfið verður líklega Android 4.2.1 Jelly Bean og mögulega næsta útgáfa af Android (Key Lime Pie)
- Stuðningur fyrir 4G samband
Ekkert af þessu er þó staðfest þar sem eins og kom fram áðan Samsung hefur staðið sig mjög vel í að halda upplýsingunum leyndum.
Við bíðum því spennt eftir að fá meiri upplýsingar um S IV sem og aðrar nýjar vörur frá Samsung, 14.mars.
p.s. Galaxy Siv? Það er skemmtilegt og norrænt.
Heimildir:
Trackbacks & Pingbacks
[…] styttist óðum í að Samsung Galaxy S IV verði tilkynntur en við höfum heyrt einhverja orðróma um hvað síminn muni innihalda. Við erum mjög spennt að fá meiri upplýsingar um þetta […]
Comments are closed.