Nýjasta útgáfa Chrome lækkar gagnamagnið

Á næstu dögum kemur út ný útgáfa af Chrome vafranum fyrir iOS og Android. Vafrinn mun bjóða upp á þann möguleika að þjappa gögnum sem fara yfir netið til þess að draga úr gagnamagnsnotkun. Stillingin er valkvæð og virkar þannig að áður en síminn hleður niður síðunum þá fara þær í gegnum vefþjóna Google þar sem myndum og öðru margmiðlunarefni er þjappað. Þetta ætti einnig að hjálpa þeim sem eru á lélegu 3G svæði og hafa þurft að þola hægt net. Google telur að þetta geti lækkað gagnamagnsnotkun vafrans um allt að 50%.

Heimild: The Verge