Clear appið er virkilega flott „to do” app

Clear heitir iOS app sem er einskonar verkefnalisti og heldur utan um hluti sem þú þarft að muna (to do lists). Það er til fjöldinn allur af svona öppum, meðal annars er eitt innbyggt í iOS, en það sem Clear hefur fram yfir flest hinna er virkilega töff hönnun. Allar aðgerðir eru framkvæmdar með því að draga puttana fram og til baka og sundur og saman. Hægt er að búa til marga mismunandi lista sem halda utan um mismunandi verkefni til dæmis einn fyrir matarinnkaup, annan fyrir skólann eða vinnuna og svo framvegis. Þá geta listarnir verið í ýmsum mismunandi litum.

Ég mæli með því að þið horfið á myndbandið sem fylgir þessari grein. Þar sést hvernig appið virkar og hversu flott það er.

Eins og er fæst Clear einungis á iOS tæki og kostar $1 og er hverrar krónu virði.

[vimeo id=”35693267″ width=”600″ height=”350″]

Clear í Appstore

Heimasíða framleiðandans

Simon.is á netinu