Dropbox

http://www.youtube.com/watch?v=OFb0NaeRmdg

 

Dropbox er með sniðugri forritum sem þú finnur fyrir símann þinn í dag.  Með forritinu er hægt að tengja saman símann og tölvuna þína og gera skráarskiptin auðveldari þeirra á milli.

Í verkefnavinnu getur reynst bráðnauðsynlegt að hafa aðgang inn á tölvuna þína til að nálgast skjöl sem þurfa að komast til annarra hópmeðlima, yfirmanns eða kennara. Dropbox gerir þér kleift að nálgast skjölin þín og senda þau í gegnum símann þinn vandræðalaust.

Við skráningu fær notandi 2GB geymslupláss en hægt er að komast yfir auka 250mb með því að fylgja nokkrum skrefum þegar aðgangur er stofnaður á www.dropbox.com. Auk þess er hægt að fá meira geymslupláss með því að bjóða fólki að skrá sig á Dropbox. Auðvelt er að senda skjöl í gegnum dropboxið með gmail í gegnum símann, til dæmis ferilskrána.

Hægt er að búa til möppu þar sem hinum ýmsu skjölum er deilt á milli notenda og geta þar allir tekið þátt í að setja inn efni, einnig er hægt að deila möppum á aðra einstaklinga/hópa sem gerir alla skjalameðhöndlun mun auðveldari. Hægt er að nálgast allt það efni sem geymt er á dropbox í hvaða tölvu sem er í gegnum www.dropbox.com Þetta er eitt af þessum forritum sem þú ÞARFT nauðsynlega að hafa fyrir skólann.