Símon brýtur óbrjótanlega Dell tölvu

Við skemmtum okkur konunglega á Haustráðstefnu Advania. Ásamt ýmsum hressum fyrirlestrum voru líka kynningarbásar með ýmsum tólum og þjónustum í boði. Við kíktum við á Dell básnum þar sem þeir voru með hina óbrjótanlegu Dell E6420 (höldum við að hún heiti) sem hefur aðeins verið eyðilögð með því að keyra skriðdreka yfir eða með skoti úr riffli. Við smelltum henni í gólfið, en það endaði ekki sérstaklega vel fyrir tölvuna..

https://youtu.be/5-4s604qrvk

Tölvan lifði reyndar af. SSD diskurinn losnaði örlítið og þurfi bara að festa snúruna aftur á hann. Dell ákvað að sýna að tölvan þyldi ýmislegt meira en smá kast frá Axeli Paul og keyrði yfir vélina á Advania bíl. Tölvan er núna með varanlegu hjólfari á, en er enn í fínasta lagi.