Ori and the Blind Forest: Einn af leikjum ársins?

Ori and the blind forest er indie leikur framleiddur af Moon Studios og gefinn út af Microsoft Studios. Hann er einungist fyrir Xbox One eins og er en mun koma út síðar á PC og Xbox 360.

Leikurinn fær einkunnina 9 frá öllum heilstu leikjarýnum vestanhafs og ekki furða því leikurinn lítur frábærlega út og spilunin býður upp á flótta atriði eins og þau gerast best.

Það tók 4 ár að þróa leikinn og samkvæmt höfundum hans eru þeir undir áhrifum frá klassískum leikjum á borð við Super Metroid og Zelda: A link to the Past.

Nánar um Ori and the Blind forest hér.