ConnectivityShortcut fyrir WP7 gerir þér kleift að breyta stillingum hratt
Windows Phone 7 stýrikerfið sker sig heilmikið úr hvað varðar útlit og upplifun og það sem spilar hvað stærstu rulluna þar eru flísarnar sem blasa við manni sem aðalvalmynd.
Eitt mjög gott forrit fyrir WP7 er ConnectivityShortcut. Forritið er mjög einfalt og skýrir sig eiginlega sjálft með nafninu. Í stað þess að þurfa að kafa ofan í stillingar á símanum ertu með þessu forriti kominn með þessar einföldu skipanir eins og t.d. að slökkva og kveikja á þráðlausu neti og bluetooth þar sem þær eiga heim, í aðal valmyndinni.
ConnectivityShortcut er frítt og hægt er að nálgast það á Marketplace hjá Windows.