Jelly Bean (Android 4.1) rúllar út á Galaxy S2

SAMSUNG-GALAXY-S2

Á meðan Samsung vinnur að undirbúningi að tilkynna Galaxy S4 símann frá sér þá er greinilegt að þeir hafa ekki gleymt sínum fyrsta síma sem sló í gegn. En það er Galaxy S2 sem seldist í 40 milljón eintökum og er enn í sölu í dag. Eigendur þessa síma geta glaðst í dag því Samsung hefur klárað uppfærslu fyrir notendur þessa síma í Jelly Bean sem er næst nýjasta útgáfan af Android stýrikerfinu.

Fyrstu notendurnir sem fengu uppfærsluna eru þeir sem eru staddir á Spáni. Samsung keyrir sínar uppfærslur út eftir svæðum og því getur verið smá tími þangað til að uppfærslan skili sér hingað til lands eftir því í hvaða röð Samsung ákveður að keyra hana út. Samsung gaf út að uppfærslan myndi skila sér í Febrúar og það virðist stemma við að uppfærslan sé byrjuð í dreifingu.

Uppfærsluna verður eingöngu hægt að keyra inn í símana í gegnum Kies (Sambærilegt iTunes fyrir apple fyrir uppfærslur) vegna þess að Jelly Bean uppfærslan verður að nýta meira pláss símans en núverandi Ice Cream Sandwich útgáfan.

Vert að minnast á að Samsung mun einnig uppfæra flest í notendaviðmóti símans og mun þá S2 keyra nýjustu útgáfu af TouchWiz sem nú er að finna á S3 og nýrri símum frá Samsung. Jelly Bean mun meðalannars koma með Google Now sem við fjölluðum um hér og svo mun fylgja þessari uppfærslu Project Butter sem á að gera viðmótið á símanum viðbragðsbetra og þýðara í vinnslu.