Affinity Photo: Nýtt myndvinnsluforrit fyrir Mac

Affinity er nýtt myndvinnsluforrit fyrir Mac sem kom út fyrr í mánuðinum. Það er einungis fyrir Mac og er ætlað að keppa við Photoshop. Það er enn á beta stigi og verður frítt þangað til það kemur út en þá mun það kosta $50 í Mac App Store.

Affinity Photo Eliphant

Mörg myndvinnsluforrit eins og Gimp bjóða upp á takmarkaða eiginleika í samanburði við Photoshop en framleiðendur Affinity lofa öflugu forriti sem er jafnframt létt í keyrslu.

Affinity Photo Stelpa

Ashley Hewson, framkvæmdastjóri Serif sem framleiðir forritið, sagði í viðtali við Creativebloq að Photoshop væri orðið 25 ára gamalt og tæki því ekki mið af þeirri framþróun sem hefur orðið í tölvutækni. Affinity Photo er nýtt og ferskt og því ættu notendur ekki að lenda oft í “scrolling wheel of death” sem getur verið mjög þreytandi og algengt í þungri myndvinnslu.

Meðlimir Simon.is hafa prófað beta útgáfuna lítillega og stærsti gallinn er að Photoshop flýtiskipanir virka ekki með Affinity. Ef það verður lagað þá gæti það mögulega komið í staðinn fyrir Photoshop.

Affinity Photo OOH

Því miður er ekki til Windows útgáfa af forritinu og verður líklega ekki í boði á næstunni því Serif mun einbeita sér að iOS útgáfum af öðrum vörum sem fyrirtækið býður upp á.

Sækja Affinity Photo Beta

Heimild: Creativebloq