Tæknivarpið – Hægt að panta íslenskan leigubíl í London

BSR-leigubílastöðin er búin að gefa út app þar sem hægt er að panta og greiða fyrir leigubíl. Appinu svipar til Uber-appsins sem hefur notið þónokkurra vinsælda erlendis. Appið á að vera aðgengilegt notendum bæði Android og Apple-tækja en það er enn í tilraunaútgáfu svo á því eru gallar. Axel Paul Gunnarsson náði til dæmis að panta sér leigubíl til London. Tæknivarpið ræðir nýmóðins leigubílaþjónustu í þætti dagsins. Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Atli Stefán Yngvarsson og Axel Paul.

Meðal þess sem rætt er í þættinum er framtíð fjölmiðlunar fjallað um fræðslufund VÍB, besta lyklaborðið fyrir iOS-tæki og væntanlega samkeppni Apple við Spotify á tónlistarleigumarkaði.


Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér til hliðar eða á síðu Kjarnans eða fá alla þættina beint í tækið þitt með hlaðvarpsstraum Kjarnans
Áskrift í iTunes
Sækja RSS-straum