HTC One fær uppfærslu í Kit Kat

HTC er byrjað að uppfæra evrópska HTC One síma í Android 4.4 Kit Kat. Franska símafyrirtækið SFR fékk fyrstu uppfærsluna og á næstu dögum munu notendur um alla Evrópu fá meldingu í símann um uppfærsluna. 4.4.2 uppfærslan færir notendum Kit Kit ásamt ýmsum öryggisviðbótum. Með uppfærslunni kemur einnig ný útgáfa af Sense viðmótinu: Sense 5.5.

Heimild: GSM Arena