Apple hélt kynningu nú fyrr í dag og kynnt til leiks tvær nýjar spjaldtölvur: iPad Air og nýr iPad mini retina.
Kynningin byrjaði á “massa rúnki” eins og Húsvíkingurinn Andri Valur kallar það, þar sem Apple fer yfir sölutölur og viðtökur nýrra vara. Skemmtilegar tölur komu þar fram; eins og að 9 milljón iPhone símar seldust fyrstu helgina, einn milljarður laga hafa verið spiluð í iTunes Radio (virkar bara með US aðgangi), einn milljarður appa keypt í App Store og 60 milljörðum niðurhalað.
Ný útgáfa af tölvustýrikerfi þeirra var líka kynnt í dag: macOSx Mavericks. Stýrikerfið lengir í endingu rafhlaðna fartölva, bætir stuðning við aukaskjái, betri tilkynningar og margt fleira. Apple kom öllum á óvart og býður upp á ókeypis uppfærslu en uppfærslurnar hafa hingað til kostað um $20.
Macbook Pro fartölvurnar voru allar uppfærðar í dag. MacBook Pro 13” er nú þynnri, léttari og með miklu lengri rafhlöðuendingu.
Mac Pro borðtölvan, sem er í raun sílender, sem hefur verið kynnt áður fékk loksins útgáfutíma. Hún kemur með tólin fyrir jólin og kostar einungis þrjú þúsund dali í Bandaríkjunum (líklega hálfa milljón hérna heima).
iWorks og iLife fengu bæði uppfærslur og okkur er eiginlega alveg sama. Það fylgir reyndar frítt með nýrri tölvu frá Apple núna.
Comments are closed.