10 GB á 500 kr. – Það verður ekki ódýrara

Við höfum reglulega fjallað um gagnamagn hér á Simon.is enda er það mikilvægur þáttur í því að eiga og nota snjallsíma og spjaldtölvur. Nú hefur Tal stigið skrefinu lengra og býður gagnamagn á verði sem hefur ekki sést áður. Tíu gígabæt á 500 krónur fyrir þá sem eru með farsíma í áskrift. Til samanburðar settum við upp töflu með lauslegum verðsamanburði á gagnamagni farsímafyrirtækjanna:

Miðað við verðskrár símafyrirtækjanna í júlí 2012

Hafa verður í huga að svona samanburður, lið fyrir lið, er erfiður og getur verið villandi ef fólk er ekki meðvitað um galla samanburðarins. Gott dæmi er ágæt reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar, sem sýnir samanburð á milli þjónustuleiða símafyrirtækja. Flest fyrirtækin bjóða upp á ákveðna pakka, sem hin félögin bjóða ekki, og gerir það samanburðinn erfiðan.

Þrátt fyrir þetta flækjustig í samanburði er óhætt að fullyrða að Tal býður í dag upp á langbesta verðið á gagnamagni. Það hljóta allir eigendur snjallsíma og spjaldtölva að íhuga þetta alvarlega.  Að vera með iPad eða Galaxy tab 8,9  á 3G og hafa 10 GB gagnapakka getur ekki verið annað en frábært.

Heimildir: Nova, Síminn, Tal, Vodafone, Hringdu, Alterna.

Uppfært 14:00 – Taflan leiðrétt. Vantaði inn 15GB pakka Vodafone. Umframnotkun hjá Tal kostar 2 kr. pr. MB. 

Simon.is á fleiri miðlum