Tæknivarpið: Fólk sækir í gamalt efni á RUV.is

Ingólfur Bjarni Sigfússon, nýmiðlastjóri RÚV, var gestur Tæknivarpsins þessa vikuna. Við fórum yfir fréttir vikunnar um nýtt Pebble snjallúr, gagnaver Apple á Íslandi, nýjan vef RÚV.is og framtíð RÚV á nýmiðlum. Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Atli Stefán Yngvason og Bjarni Ben.
Tæknivarpið #15 - Ingólfur Bjarni gestur


Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér til hliðar, á síðu Kjarnans eða fáðu alla þættina beint í tækið þitt með hlaðvarpsstraum Kjarnans.
Áskrift í iTunes
Sækja RSS-straum