Windows Phone – Herbergi og Hópar

Hjá Simon er mikið af fjölskyldufólki sem fagnar hverju tækifæri sem gefst til þess að skipuleggja sig betur með hjálp snjallsímans.  Við þekkjum vel hversu erfitt það getur verið að muna eftir læknatímum, söngstund í leikskólanum, fundum í skólum, afmælum o.s.frv. ef skipulagið er ekki gott.

Windows Phone App eða virkni vikunnar tekur vel á þessu atriði og býður upp á lausn sem gæti leyst þetta vandamál með stæl. Við ætlum að skoða herbergi (e. Rooms) sem er partur af People hub sem er innbyggt í Windows Phone 8. Simon hefur verið að prófa sig áfram með þetta síðustu vikurnar og má segja að við séum mjög ánægðir með virknina.

Í mjög stuttu máli þá er hægt að búa til tvær tegundir rýmum eða herbergi og síðan hópa og má sjá mismunandi virkni hér að neðan.

Í lokuðu herbergi er hægt að samstilla:

  • Minnismiðar (OneNote innkaupalistar og aðrir minnismiðar)
  • Dagbók (Calendar)
  • Deila myndum og myndbönd
  • Hópsamtöl (einn á einn eða allir saman, SMS og tölvupóstur)
  • Fylgjast með virkni hjá aðilum í hóp á Facebook
  • Sérsniðnir bakrunnum sem hægt að vera velja af síma eða t.d. Facebook
  • Nýjum aðilum bætt við með SMS skilaboðum

Hópar gerir notenda mögulegt að fylgjast með og hafa samskipti við afmarkaðann hóp.

  • Hópsamtöl (einn á einn eða allir saman, flýtivísanir í SMS og tölvupóstur)
  • Fylgjast með virkni hjá aðilum í hóp á Facebook
  • Nýjum aðilum bætt við úr tengiliðaskrá

Einfalt er að búa til herbergi og hóp eftir þörfum (t.d. skólavinur, saumaklúbburinn o.s.frv.)

Simon varð sér útum tvo Windows Phone 8 síma og ákvað að prófa hvernig þetta gæti nýst fjölskyldunni. Fyrst var byrjað á því að opna tengiliði (People hub) og síðan dregið einu sinni frá vinstri til hægri á skjánum og þá vorum við komnir í herbergin. Þar opnuðum við fjölskylduherbergið.

Uppsetning var einföld, en á fyrsta tækinu var smellt á bæta einhverjum við (invite someone). Þá var farið í tengiliði og nafn viðkomandi valið og smellt á senda. Viðkomandi fær þá SMS með tengli sem hann smellir á og þá eru þessir tveir aðilar orðnir meðlimir í fjölskylduherberginu.

Uppsetningaferlið tók undir 2 mínútur og þá gat fjölskyldan farið að skipuleggja sig og deila upplýsingum sín á milli í lokuðum hópi sem enginn hefur aðgang að nema þeim sem er boðið þar inn.

wp_ss_20130313_0003  wp_ss_20130313_0004  wp_ss_20130313_0005  wp_ss_20130313_0006

 

Við hjá Simon vorum mjög hrifin af hversu einfallt er að setja þjónustuna upp ásamt því hvað öll samvirkni á milli tækja var einföld og “bara virkaði”. Við mælum með að Windows Phone 8 notendur prófi herbergin og það kæmi okkur á óvart ef þetta verður ekki komið á top 10 af bestu kostum stýrikerfisins eftir smá notkun.

Athugið að full virkni er aðeins möguleg í Windows Phone 8 en hægt er að samnýta dagatal með Windows Phone 7 og iPhone notendum
UPPFÆRSLA: samkvæmt upplýsingum frá lesenda þá er einnig hægt að samnýta dagatal með Android ef viðkomandi er með Hotmail appið uppsett

Hér með sjá Youtube myndband frá Microsoft sem sýnir hvernig herbergi eru búin til:
[youtube id=”abIWIMOf2go” width=”600″ height=”350″]