Notaðu Android forrit í Windows 8

Forrit í Windows 8 eru í stuttu máli tvískipt, annars vega þessi hefðbundnu Windows forrit sem allir þekkja eins og Office, Photoshop o.s.frv. og síðan Windows 8 öpp (hétu áður Metro/Modern öpp). Windows 8 öpp eru bara fáanleg í Windows Store (vefverslun) og eins og flestir vita þá hefur verið fundið að því að Windows 8 öpp eru töluvert færri en þau sem eru aðgengileg eru í Apple Appstore eða Android Play store.

Núna er í þróun lausn sem heitir Bluestack sem gerir Windows notendum mögulegt að nota forrit af Android markaði á Windows 8. Tilgangurinn er vitanlega sá að gera Windows notendum mögulegt að fá aðgang að 750.000 öppum sem hlýtur að vera eftirsóknarvert.

Hér er smá kynningu á Bluestack sem eins og sjá má keyrir á spjaldtölvum, fartölvum og borðtölvum sem nota Windows 8.
[youtube id=”2dZHdnJLzJg” width=”600″ height=”350″]

Simon prófaði að setja upp Bluestack á Acer Iconia W700 vél (Windows 8 PRO) og virkaði það ágættlega en þó alls ekki fullkomlega. Útlitið og virkni á uppsetningarforritum og stillingum eru enn vanþróað og virkar frekar þungt í keyrslu ásamt því að snertiskjárinn virkaði ekki í öllum valmöguleikum. Stundum er eins og grafíkin sé hönnuð fyrir símaskjá og teygð upp á spjaldtölvu sem er pirrandi.
Við sóttum nokkra leiki og settum upp á vélinni og virkuðu þeir sumir ágætlega en samt greinilegt að það á eftir að fínpússa Bluestack betur til. Mörg forrit sem eru á Android Play Store eru hönnuð fyrir spjaldtölvur og virkuðu þau eðlilega betur í prófunum en önnur sem litu út fyrir að vera teygð á skjánum.

Bluestack er enn í Beta útgáfu en gaman verður að fylgjast með þessu þróast á næstu mánuðum.

Heimild: Gigaom

Hér er heimasíða Bluestack

ATH. Virkar ekki á Windows 8 RT útgáfu