iOS 5.1 er komið út

iOs 5.1 er komið út. Sú nýjung fylgdi 5.0 útgáfunni að hægt er að uppfæra stýrikerfið í símanum þráðlaust þ.e. án þess að tengja hann við tölvu og iTunes. Hjá mér er uppfærslan  189 MB yfir þráðlaust net en 803 MB við uppfærslu í iTunes. Ekki er verra að taka afrit af gögnum í iTunes fyrir þá sem vilja vera öruggir. Þó ætti iCloud að hafa afrit af gögnum símans ef allt er rétt stillt.

Til að uppfæra símann farið þið í Settings – General – Software Update

Við vörum fólk við að uppfæra aflæsta síma. Þá fer allt í rugl. 

 

Það helsta sem þessi uppfærsla hefur að bjóða:

  • Siri á japönsku.
  • Hægt að eyða myndum úr Photo stream.
  • Myndavélahnappur er nú alltaf sjáanlegur þegar síminn er læstur (áður þurfti að tvísmella á home takkann til að myndavélahnappurinn birtist).
  • Andlitsgreining greinir nú öll andlit á hverri mynd.
  • Endurhannað myndavéla-app í iPad.
  • Genius Mixes og Genius lagalistarnir fyrir iTunes Match áskrifendur.
  • Hljóð fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndir í iPad lagað svo hljóðið verði hærra og betra.
  • Hægt að stjórna spilunarhraða á hlaðvarpi (e. podcast) og spóla til baka um 30 sekúndur í einu í iPad.
  • Aukin rafhlöðuending.
  • Löguð villa sem olli því stundum að hljóðið datt út þegar hringt var úr símanum.

 

Simon.is á fleiri miðlum