Simon.is
  • Fréttir
    • Föstudagsflipp
  • Forrit & leikir
    • Android öpp
    • Android leikir
    • iPhone öpp
    • iPhone leikir
    • Windows Phone forrit
    • Windows Phone leikir
  • Umfjallanir
    • Snjallsímar
    • Spjaldtölvur
    • Annað
  • simon.is
    • Um simon.is
    • Hafa samband

112 Iceland – nauðsynlegt íslenskt app fyrir ferðafólk

Bjarni Ben 13. júní 2012

Nýlega kom út appið 112 Iceland fyrir Android og iOS sem er ætlað fyrir ferðamenn. Tilgangur appsins er að auðvelda Neyðarlínunni að finna týnda ferðamenn með því að skilja eftir GPS slóð og fá nánari upplýsingar um þá. Helsti kosturinn við appið er að það er óþarfi að vera í gagnasambandi til þess að nota það því hefðbundið GSM samband nægir.

En eins og fram kemur í fréttatilkynningu kemur appið ekki í staðinn fyrir hefðbundin öryggistæki:

Skýrt skal tekið fram að þessum
hugbúnaði er ekki ætlað að leysa önnur öryggistæki á borð við neyðarsenda eða
talstöðvar af hólmi. Hins vegar er forritið nýja gagnleg viðbót sem nýtist hinum
mikla fjölda fólks er notar snjallsíma og þéttir þannig það öryggisnet fjarskipta
sem fyrir er í landinu.

Þegar appið er ræst tekur þessi skjár við notandanum:

Hægt er að skilja eftir sig slóð eða „brauðmola“ með því að ýta á græna takkann en við það sendir síminn upplýsingar um staðsetningu þína og tímasetningu til Neyðarlínunnar. Fimm síðustu skráningar eru geymdar og eru einungis notaðar við leit eða björgun þar sem óttast er um afdrif þín.

Rauði takkinn er svo til þess að hringja í 112 en jafnframt verður staðsetning þín send til Neyðarlínunnar til að tryggja að viðbragðsaðilar komist á réttan stað.

Til þess að auðvelda björgunarfólki að vita hver sendi neyðarkallið er boðið upp á að fylla inn grunnupplýsingar um þig. Einnig er hægt að velja hvort appið sé stillt á íslensku eða ensku en enska er sjálfvalin þegar appið er opnað í fyrsta skipti.

Valitor þróaði appið í samvinnu við Stokk en Neyðarlínan, Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra komu líka að þessu verkefni. Appið er mjög einfalt og auðskiljanlegt og mjög sniðug viðbót til að auðvelda Neyðarlínunni vinnu sína ef svo óheppilega vill til að notandinn þarf á aðstoð hennar að halda. Við prufuðum appið í dag og þrátt fyrir að það sæki GPS upplýsingar reglulega virðist það ekki bitna mjög illa á rafhlöðuendingu símans. Það er því óhætt að mæla með þessu appi fyrir alla sem ætla sér að ferðast um landið.

 

Appið er frítt og er í boði fyrir bæði iOS og Android.

» 112 Iceland á Google Play
» 112 Iceland í App Store

Simon.is á fleiri miðlum

Simon.is á fleiri miðlum

Tweet
Email Share
MERKI » 112, iceland, neyðarlínan, Slysavarnafélagið Landsbjörg, stokkur, top, útivist, valitor
BIRT Í » Android, Android öpp, Apple, Fréttir, iPhone öpp, Íslenskt app

Tengdar greinar »

Instagram fyrir Windows Phone

Instagram fyrir Windows Phone

Skilaboðaþjónusta Google kallast nú Google Hangouts

Skilaboðaþjónusta Google kallast nú Google Hangouts

Google í samkeppni við Spotify

Google í samkeppni við Spotify

Horfðu á Google I/O ráðstefnuna í beinni útsendingu

Horfðu á Google I/O ráðstefnuna í beinni útsendingu

Facebook ummæli:

Leave A Response »

Smelltu hér til að hætta við.

Símon á Facebook

Umfjallanir »

Samsung Galaxy S4 umfjöllun: Konungur snjallsímanna?

Samsung Galaxy S4 umfjöllun: Konungur snjallsímanna?

maí 15, 2013,
Finndu hótel á lágu verði og á besta stað!

Finndu hótel á lágu verði og á besta stað!

maí 8, 2013,
Sony Xperia Z umfjöllun: Vatnsheldur ofursími – Myndband

Sony Xperia Z umfjöllun: Vatnsheldur ofursími – Myndband

apríl 29, 2013,

Leiðbeiningar »

Windows Phone – Líftími og uppfærslur

Windows Phone – Líftími og uppfærslur

mars 19, 2013,
Windows Phone – Herbergi og Hópar

Windows Phone – Herbergi og Hópar

mars 14, 2013,
Streymdu tónlist með SkyDrive

Streymdu tónlist með SkyDrive

febrúar 25, 2013,

Aðrir mæla með

Tíst

Fylgið okkur á Twitter



Simon.is á Google+

Copyright © 2011 - Avenue. All rights reserved.

Powered by WordPressUpp