Simon.is
  • Fréttir
  • Forrit & leikir
    • Android forrit
    • Android leikir
    • iPhone forrit
    • iPhone leikir
    • Windows Phone forrit
    • Windows Phone leikir
  • Umfjallanir
  • simon.is
    • Um simon.is
    • Hafa samband

Nýja Amazon Kindle Fire spjaldtölvan kostar aðeins $199

Bjarni Ben 28. September 2011

Amazon blandaði sér á spjaldtölvumarkaðinn í dag þegar þeir kynntu Amazona Kindle Fire. Hingað til hefur Amazon aðeins selt Kindle rafbókarlesara með svarthvítum “e-ink” skjá en bjóða nú upp á spjaldtölvu sem keyrir á Android stýrikerfinu og skartar 7″ litaskjá. Það ótrúlegasta við Kindle Fire er verðið – $199 sem er um 24.000 kr.

Kindle Fire er kannski ekki sambærileg við iPad 2 frá Apple því innvolsið í Amazon töflunni er alveg í samræmi við verðið. Það er engin myndavél, það er ekki hægt að tengjast 3G eða í gegnum bluetooth og geymsluplássið er aðeins 8GB. Geymsluplássið skiptir kannski minna máli í dag heldur en það gerði fyrir nokkrum árum síðan því mikið af tækjum í dag tengjast skýþjónustum sem er einmitt það sem Amazon hefur einblínt mikið á að undanförnu. Allt efni sem þú kaupir frá Amazon er geymt á netinu, eða í skýinu.

Helstu eiginleikar:

  • Android 2.3 stýrikerfi
  • 7″ skjár gorilla glass skjár
  • 1024×600 skjáupplausn
  • 1GHz TI OMAP 4 Dual core örgjörvi
  • 512mb minni
  • 8 GB geymsupláss
  • Wi-Fi (b/g/n)
  • 8 tíma rafhlöðuending
  • 11,4mm á þykkt og 414 grömm á þyngd

 

Amazon segja að það verði innbyggður email client og stuðningur fyrir Office skjöl. Vafrinn á Kindle Fire kallast Amazon Silk og mun hann tengjast skýþjónustu Amazon til að auðvelda vinnslu vafrans. Þetta lítur því ákaflega vel út sem ódýr Android tafla fyrir þá sem leggja ekki í verðið á iPad 2 eða hinum Android töflunum á markaðnum.
Hinn klassíski Amazon Kindle rafbókarlesari fékk líka uppfærslu í morgun og fæst nú í þremur útgáfum:
Kindle ($79), Kindle Touch ($99) og Kindle Touch 3G($149). Þeir tveir síðast nefndu eru með snertiskjá.

Mynd: Gizmodo

Heimildir:
Gizmodo.com
Thisismynext.com
Tweet
Email Share
BIRT Í » Áhugavert, Android

Facebook ummæli:

Leave A Response »

Click here to cancel reply.

Símon á Facebook

Umfjallanir »

HTC One X kominn til Íslands

HTC One X kominn til Íslands

April 26, 2012,
Sony Xperia S – fyrsti Sony síminn í mörg ár

Sony Xperia S – fyrsti Sony síminn í mörg ár

April 22, 2012,
Samsung Galaxy Tab 10.1 umfjöllun

Samsung Galaxy Tab 10.1 umfjöllun

March 30, 2012,

Forrit & Leikir »

GetGlue – Sýndu vinum hvað þú ert að bauka

GetGlue – Sýndu vinum hvað þú ert að bauka

May 18, 2012,
Siri: Lumia er besti síminn

Siri: Lumia er besti síminn

May 18, 2012,
KR appið – Elska allir KR ?

KR appið – Elska allir KR ?

May 15, 2012,

Aðrir mæla með

Tíst

  • Langar þig að skrifa fyrir http://t.co/WfJEUDVm? http://t.co/1If7dCqP
  • @arnitorfa Þú ert ekki blindur. RSS var alltaf í footernum. Takk fyrir ábendinguna, við erum að vinna í þessu! :)
  • @jonolafs þetta er allavega á frekar gráu svæði :)
  • @toskuroghulstur akkúrat, það er spurning hvort að Apple elti trendið og stækki skjáinn ekki satt?
  • Rifrildi dagsins innan http://t.co/WfJEUDVm hópsins: Hvað verður næsti iPhone með stóran skjá? http://t.co/v1OhxuUI

Fylgið okkur á Twitter

Copyright © 2011 - Avenue. All rights reserved.

Powered by WordPressUpp