Microsoft byrjaði að dreifa nýrri uppfærslu af snjallsímastýrikerfi sínu nýlega. Stýrikerfið sem um ræðir er kallað Windows Phone 7.5 og útgáfan fékk vinnuheitið Mango. Simon.is fékk lánaðan Mango síma frá Microsoft á Íslandi og er búið eyða heilmiklum tíma í að prófa þá útgáfu til að geta frætt ykkur kæru lesendur um kosti og galla þess stýrikerfis. Samkvæmt kynningu frá Microsoft hefur uppfærslan að geyma 500 viðbætur og lagfæringar! Tvær af þeim eru stafirnir Þ og Ð á lyklaborðinu!
Síminn sem um ræðir er LG E900 Optimus 7 sem ég einmitt prófaði á sínum tíma með Windows Phone 7 þegar það kom út. LG E900 er fínasti sími, en ekki sá nýjasti. Hann er með 1 Ghz örgjörva, 512MB vinnsluminni, 3,8″ skjá með 480×800 upplausn (með gorilla glass), 16GB geymsluminni og 5MP myndavél með flassi. Þetta telst enn þá daginn í dag vera mjög góður sími og ég verð að bæta við að þetta er besti LG snjallsíminn sem ég hef notað (og ég hef notað LG Black, Optimus One, Optimus 2X og Optimus 3D). Það gæti verið að stýrikerfið hafi haft áhrif á þá skoðun.

Hvað er nýtt?
Það er erfitt að reyna fjalla um 500 viðbætur. Skoðum þær sem eru mest spennandi!
- Íslenskir stafir
- Fjölverkavinnsla (multitasking)
- Nýjungar í póstforritinu
- People Hub
- Ný talstýring (engin stuðningur við íslensku)
- Office hub og Skydrive
- Internet Explorer 9
- Groups
- Samskiptaforrit í bland við SMS

Í raun er algjörlega ónauðsynlegt að sækja sérhönnuð „öpp“ til að tengjast mismunandi samskiptaþjónustum. Þetta er allt aðgengilegt beint úr People Hub. Það er eins gott því að official Facebook app fyrir WP7 er nokkuð takmarkað, og ekki nálægt því eins skemmtilegt í notkun eins og Facebook „appið“ fyrir Android. Fólk hefur þó val um að sækja sérhæfð „öpp“ ef það er ekki sátt við People Hub.
Office Hub er Office á ferðinni. Hægt er að skoða og breyta Office skjölum (Word, Excel), tengjast Sharepoint þjóni, nota Skydrive (frítt dropbox) og Onenote glósukerfið (uppáhalds). Þetta er án efa öflugasta Office kerfið sem ég hef séð á snjallsíma. Nú er hægt að vista Excel, Word, Onenote og Powerpoint skjölin beint á Skydrive. Einnig er hægt að tengja þau við sharepoint svæði eða Office365. Í upphafi hélt ég að ég myndi lítið nota Office á símanum mínum, þar sem ég hefði ekki trú á því að það væri þægilegt. Ég hafði sannarlega rangt fyrir mér með það, og verð að viðurkenna að þetta er eitt af því sem ég nota mest í símanum. Ég er alltaf að opna og skoða vinnutengd skjöl í símanum. Hluti þessarar greinar er t.d. skrifaður í Word með símanum mínum á meðan ég horfði á sjónvarpið, og vistaðist sjálfkrafa á skydrive reikninginn minn svo ég gat gengið að skjalinu vísu þegar ég settist aftur við tölvuna til að halda áfram. Svona á skýþjónusta (Cloud service) að virka.
Samantekt
Ég hef því beðið lengi eftir nýju uppfærslunni fyrir WP7, sem hefur gengið undir vinnuheitinu Mango. Allir gallarnir sem ég listaði upp hér fyrir ofan hafa verið lagfærðir í þessari uppfærslu. Eftir að hafa leikið mér með Mango núna í viku verð ég að segja að ég er hæst ánægður með uppfærsluna. Mér líður eins og ég sé með nýjan síma í höndunum, svo mikil er breytingin. Maður á erfitt með að skilja afhverju Microsoft fór með símann á markað eins og hann var fyrir Mango.
- íslensk orðabók
- íslenskt viðmót
- Google search út frá Search takkanum
- öpp (alltof fá)














Facebook ummæli: